Maí
Humarhöfnin
Humarhöfnin
Mynd 1 af 3
1 2 3

11.05.2010 Maí

Humarhöfnin endurbætt!

 

Veitingastaðurinn Humarhöfnin hefur nú opnað aftur eftir vetrarhvíld. Fyrst um sinn er opið frá 18.00 alla daga en um eða upp úr miðjum maí verður opið frá kl. 12.00. Veturinn var notaður til að breyta og bæta hágt og lágt innan dyra sem utan. Meðal þess sem gert var, var að þurrka upp kjallarann sem hefur lekið um árabil en nýtist nú sem þvottahús og lager, þá var sett upp nýtt vöruþróunareldhús á efri hæð, aðstaða í eldhúsi á neðri hæð bætt og skrifstofa stækkuð svo nú er pláss fyrir bæði  Önnu og Ara þar.

Ný borð og stólar eru í matsal á neðri hæð en þau gömlu nýtast í sal á efri hæð og úti á okkar fínu verönd.  Framundan er svo að malbika lóðina og setja upp skjólvegg i, auglýsingaskilti og útilistaverkið Einvaldsklærnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica