Hótel Vatnajökull opnar fyrir sumarið
Hótel Vatnajökull Fosshótel var opnað í síðustu viku. Að þessu sinni er hótelstjórinn Hornfirðingurinn Stefán Þór Arnarson einn af Tobbalingunum eins og hann kynnti sig.
Stefán sagði í viðtali við vefinn að það hefði ekki verið ætlunin að starfa í þessum geira heldur ætlaði hann að feta í fótspor feðranna fór í stýrimannaskólann og lauk skipstjórnarnámi þaðan. Eftir nokkur ár á sjónum ákvað hann að fara í kokkanámið var fyrst á Lækjarbrekku í eitt og hálft ár og lauk svo náminu í Perlunni, vann að því loknu á ýmsum stöðum í Reykjavík m.a. hjá Brynjari Eymundssyni . Eftir nokkur ár í kokkinum flutti Stefán og kona hans Ingibjörg Sveinsdóttir til Sviss þar sem hann tók mastersnám í ferðamálum og hótelstjórn. Að mastersnámi loknu sneru þau heim til Íslands þar sem Stefán varð veitingastjóri á Grandhóteli í Reykjavík og nú er hann kominn heim á æskustöðvarnar. Stefán segir að fjölskyldan öll ( þau eiga 2ja ára dóttur) sé ofboðslega ánægð með að vera komin í Hornafjörðinn. Ingibjörg er kennari og byrjar að kenna í Heppuskóla í haust.
Stefán er bjartsýnn á ferðamennskuna í sumar, þetta fer hægt af stað en ég held að þetta sé ekkert hægar en undanfarin ár, aðeins er um afpantanir en við erum brött engu að síður. Við erum afskaplega ánægð með þær viðtökur sem við höfum fengið hjá Hornfirðingum og við vonumst til að sjá sem flesta hér af heimaslóðum koma og nýta sér góða þjónustu og ljúffengra veitinga á Hótel Vatnajökli .
Við leggjum áherslu á að fá allan mat fyrir hótelið hér í sveitarfélaginu segir Stefán, reynt verður að fá allt hráefnið,,beint frá býli´´ t.d. naut og kartöflur frá Seljavöllum, silung frá Hala, rjómaís frá Árbæ humarinn frá sjómönnum hér, gæsina af túnunum og lambakjötið frá bændum. Við bjóðum uppá máltíðir sem saman standa af 5-6 smáréttum, tilvalið fyrir þá sem vilja smakka eitthvað annað en þetta hefðbundna.
Við erum mikið að athuga þann möguleika að hægt verði að taka meira á móti lausatraffíkinni, það er að fólk komi og fái sér kaffi eða mat og við höfum fengið mikið af fyrirspurnum um þetta en ennþá er betra að fólk hringi og panti áður en það kemur. Við getum tekið á móti 60 manns í gistingu í 27 tveggja og þriggja manna herbergjum og í matsal eru sæti fyrir 70-80 manns. Eins og er höfum við morgunverðarhlaðborð fyrir hótelgesti og mat á kvöldin. Svo er að finna hvernig heimamarkaðurinn verður og hver þörfin verður þar, það er svona framtíðarverkefni segir Stefán Þór sem hlakkar til að starfa hér á heimaslóðum




Skrifa athugasemd