FAS á toppnum
Í vetur hefur verið starfandi útivistarhópur í FAS. Hópurinn setti sér strax í upphafi það markmið að reyna að komast á sjálfan Hvannadalshnjúk.
Á Hvítasunnudag fór hópurinn út í Öræfi, því reyna átti við hnjúkinn á annan í Hvítasunnu. Gist var í Hofgarði nóttina áður. Svefninn var þó stuttur, því farið var að sofa rúmlega ellefu og á fætur rétt um þrjú. Klukkan fjögur var hópurinn kominn að Sandfelli og þar beið leiðsögumaður. Veðrið var gott og allir hressir.
Hópurinn var kominn á toppinn rétt um hádegi í blíðskaparveðri og hafði leiðsögumaðurinn á orði að færið væri það besta sem hægt væri að fá. Eftir rúmlega klukkustundar stopp á toppnum var haldið til baka og eins og á uppleiðinni gekk allt vel.
Það var þreyttur, sáttur og ánægður hópur sem kom niður af hæsta fjalli landsins um hálffimm.
Frétt af fas.is





Skrifa athugasemd