Maí
Björgunarskip frá Færeyjum
Björgunarskip frá Þórshöfn í Færeyjum kom til Hornafjarðar í gærkvöldi á leið til Reykjavíkur. Björgunarskip Hornfirðinga, Ingibjörg Guðmundsdóttir fór til móts við Færeyingana þar sem þeir voru orðnir eldsneytislitlir og fylgdist með þeim inn til Hafnar. Þegar kom í Ósinn tæmdist annar tankurinn og hinn varð tómur þegar tuttugu metrar voru eftir að bryggjunni . Fjórir menn eru á björgunarskipinu og tók siglingin til Hafnar 14 klst. en skipið gengur um 40 mílur (80-90 km).
Færeyingarnir halda frá Höfn í dag og er næsti áfangi Vestmanneyjar og svo áfram til Reykjavíkur þar sem þeir ætla að vera á Sjómannadaginn.





Skrifa athugasemd