Júní
Lögreglufylgd
Lögreglufylgd
Mynd 2 af 3
1 2 3

01.06.2010 Júní

Hjólaði til Hafnar frá Klaustri

 

Fyrir nokkru mátti sjá fríðan hóp hjólreiðamanna bæði börn og fullorðna á leið frá Lónsafleggjaranum í fylgd lögreglu. Margir ökumenn hafa sjálfsagt furðað sig á því hvað væri eiginlega um að vera. Ástæða þessa var sú að Svanur Þorsteinsson, 62 ára, fyrrverandi íbúi á Hornafirði hafði ákveðið að hjóla frá Reykjavík til Hornafjarðar. Svanur varð því miður að breyta áætlun sinni örlítið og hjóla frá Klaustri vegna eldgossins og var ekki allskostar sáttur við það enda kappsamur maður á ferð. Ferðin var í raun hugsuð sem upphitun fyrir hjólaferð sem Svanur ætlar í í sumar um hálendið.  Á fimmtudeginum lagði hann af stað frá Klaustri og hjólaði að litla Hofi og gisti þar eina nótt. Síðan lagði hann af stað frá Hofi um kl.8  á föstudeginum og kom til Hafnar um hálf þrjú leytið, en það tók Svan um 6 klukkutíma að hjóla hvorn áfanga. Upphaflega ætluðu einungis dóttir hans og barnabörn að hjóla á móti kappanum en svo bættust við fleiri vinir og börnin þeirra svo að úr varð hinn myndarlegasti hópur. Lögreglan á Höfn var svo fengin til að vera með og tóku þeir uppátækinu mjög vinsamlega og keyrðu á undan hópnum og gættu þess að engin færi sér að voða. Þegar hjólreiðaferðinni lauk var svo öllum boðið í grillaðar pylsur hjá dóttur Svans og tóku allir vel til matar síns eftir púlið sælir og ánægðir eftir að hafa tekið þátt í þessu skemmtilega uppátæki. Fjölskylda Svans vill þakka lögreglunni á Höfn kærlega fyrir að taka þátt í þessu með þeim

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica