Réttir úr ríki Vatnajökuls á ensku
Matreiðslubókin Réttir úr ríki Vatnajökuls sem kom út fyrir jól er væntanleg á ensku.
Halldór segir fjölmarga ferðamenn í vetur hafa spurst fyrir um hvort að bókin kæmi út á ensku og lét því slag standa. Enska bókin inniheldur fleiri blaðsíður en sú íslenska því bætt hefur verið kafla um hefðbundinn íslenskan mat sem og fleiri ljósmyndum frá ljósmyndurum á svæðinu. Meðal annars var kíkt á Jón Bakara þegar hann bakaði rúbrauð og Auði Lóu þegar að hún var að gera sitt margfræga flatbrauð.
Halldór naut aðstoðar frá Felicity Bullock landareiganda Hvalness við þýðingu og prófarkarlesturs á bókinni og Daniel Imsland sér um grafíska vinnslu sem fyrr.
Bókinni verður dreift um sýsluna á allra næstu dögum til aðila sem hafa sýnt áhuga á að selja bókina.
Fyrir þá sem hafa áhuga að fá bókina til dreifingar er hægt að senda tölvupóst á rettir@rikivatnajokuls.is





Skrifa athugasemd