Júlí
Árgangsmót
Árgangsmót
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

07.07.2010 Júlí

Árgangsmót 1954 - 1957

 

Fimmtudaginn fyrir humarhátíð var blásið til árgangamóts fjögurra árganga (1954-1957) sem gengu saman í barnaskóla á Höfn. Komið var saman á Humarhöfninni þar sem snæddur var þríréttaður hátíðarkvöldverður og að honum loknum var  gengið fylktu liði niður í Pakkhús. Í Pakkhúsinu lék „unglingahljómsveitin“ Svartar sálir af einskærri snilld öll gömlu stuðlögin, var úthaldið og leiknin slík að aðdáun vakti. Leið svo kvöldið við að rifja upp ýmis atvik úr uppvextinum, hlægja, dansa, syngja og njóta samverunnar en til hennar mættu um 30 manns (rúmlega 50 með mökum). Undirbúningsnefndin þakkar öllum þátttakendum fyrir yndislega samveru en 20 ár eru liðin síðan þessi hópur hittist síðast. Þótti þetta mót takast með slíkum ágætum að skipuð var ný nefnd til að undirbúa annað mót að fimm árum liðnum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica