Júlí
Sveinbjörg
Sveinbjörg
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

12.07.2010 Júlí

Fjórir Hornfirðingar í eldlínunni á MÍ í frjálsíþróttum.


Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir, Jón Snorri Þorsteinsson USÚ, Bjarni Malmquist Fjölni og Vigfús Dan Sigurðsson ÍR voru heldur betur í eldlínunni á MÍ aðalhluta um helgina.
Sveinbjörg keppti í 4 greinum og hlaut 1 gull, 1 silfur og 2 brons sem er aldeilis frábær árangur hjá þessari 18 ára stúlku. Hún bætti sig  í 100m hl. hljóp á 12,64 sek. en áður átti hún 12.98 sek. og í 200m hlaupi hljóp hún á 26.06  en gamli árangurinn var 26.72 sek. Síðan varð hún íslandsmeistari í langstökki - stökk 5.90 m og önnur í kúluvarpi - varpaði kúlunni 11.71 m.

Jón Snorri Þorsteinsson keppti í fyrsta sinn á þessu móti, hann varð 8. í kúluvarpi - kastaði 11.51m og  7. í spjóti - kastaði 44.68 m.

Bjarni Malmquist varð íslandsmeistari með félagi sínu Fjölni í 4x100 m boðhlaupi á tímanum 43.02 sek. annar í þrístökki - stökk 13,64 m  og þriðji í langstökki stökk 6.89 m og svo fjórði  í  200 m. á tímanum 22.97 sek.

Vigfús Dan keppti í sleggjukasti og hlaut silfur með kasti upp á 49.04 m. og var fjórði í kúluvarpi - varpaði 14,64 m.

Það er sannalega gaman af því hvað Hornfirðigar voru áberandi á þessu móti og eru sjálfum sér og okkur til mikils sóma og æskunni góð fyrirmynd.
Þess má geta að Sveinbjörg og móðir hennar Guðrún Ingólfsdóttir eru að fara á Heimsmeistaramót 18-19 ára sem fer fram í Moncton í Canada 15. júli.  Sveinbjörg keppir kl 11.15  22 júli sem er forkeppni og ef henni tekst að komast í úrslit þá keppir hún kl 20.30 um kvöldið 22. júlí.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica