September
Svavar Guðnason
Svavar Guðnason
Mynd 1 af 2
1 2

01.09.2010 September

Bandamaður náttúrukraftanna

 

Sögusýningin „Bandamaður náttúrukraftanna“ um Svavar Guðnason listmálara opnar laugardaginn 4. september í „Kaupfélagshúsinu“ eða Kaupmannshúsi Ottós Tuliniusar. Sýningin er unnin af Huldu Rós Sigurðardóttur listfræðingi en hún hefur undanfarið unnið að mastersverkefni sínu um listamanninn. Á sýningunni gefur að líta æviágrip, heimilda-kvikmynd, kvikmyndaverk og fræðslu um líf og list Svavars úr ýmsum áttum. Hluti af sýningunni fjallar um uppruna Svavars sem tengist sögu Hafnar. Með sýningunni er markmiðið meðal annars að kynna Svavar fyrir Hornfirðingum og ferðamönnum á litríkan, lifandi og skemmtilegan hátt.

Sýningin er unnin út frá lokaverkefni Huldu Rósar í hagnýtri menningarmiðlun. Verkefnið fjallar meðal annars um það hvernig má nýta menningararf til miðlunar og uppbyggingar á Hornafirði. Fjallað er um uppruna Svavars og ár hans á Hornafirði en einnig hvernig hann tengdist svæðinu eftir að hann flutti burt. Hann var listamaður „úr ríki Vatnajökuls“ ekki síst vegna þess að einstök náttúrutilfinning hans birtist endurtekið í málverkinu, í viðtölum og allri umræðu um listamanninn. Það er rétt eins og að í huganum hafi Svavar tekið með sér náttúrufegurðina á æskuslóðunum hvert sem hann fór. Það að Svavar hafi verið fæddur og uppalinn á Hornafirði, auk þess sem hann tengdist landslaginu tilfinningaböndum, skapar tækifæri í menningartengdri ferðaþjónustu. Á sýningunni í „Kaupfélagshúsinu“ má sjá þessa hugsjón birtast í umfjöllun um listamanninn.

Sýningin opnar laugardaginn 4. september kl. 13:00 og í tilefni þess verða léttar veitingar í boði.  Allir eru velkomnir á opnunina sem stendur fram eftir degi. Sýningin verður síðan opin laugardaga og sunnudaga í september frá 13:00-16:00. Einnig er hægt að hafa samband í síma 8668675 og kíkja á sýninguna eftir samkomulagi. Hulda Rós býður Hornfirðinga velkomna á sýninguna vonast til að sjá sem flesta.

 

 

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica