Gróðurframvinda athuguð
Í gær hélt hópur úr FAS í leiðangur út á Skeiðarársand. Þetta voru nemendur úr NÁT103 sem er líffræðiáfangi.
Tilgangur ferðarinnar var að fylgjast með gróðurframvindu í ákveðnum reitum sem voru settir niður í fyrrahaust. Í hverjum reiti þurfti að flokka plöntur og framkvæma ýmsar athuganir s.s. hversu mikið trjáplöntur hafa stækkað og hvort þeim hafi fjölgað.
Þó veðrið hér á Höfn hafi verið hálf hryssingslegt í morgun voru aðstæður á sandinum góðar þó það væri nokkuð hvasst.
Í reitunum hafði plöntum greinilega fjölgað frá því í fyrra og þær vaxið mikð. Í næstu viku ætlar hópurinn svo að vinna frekar úr gögnunum og bera saman við fyrri upplýsingarnar. Það sést gríðarlegur munur á sandinum frá því í fyrra og því verður spennandi að sjá niðurstöður rannsóknanna.
www.fas.is





Skrifa athugasemd