Fréttir
Jón Guðmundsson að spila á skeiðar en hann er snillingur í þeirri gerð tónlistar. Geir Björnsson veislustjóri er einbeittur á gítarinn og Jóhann Morávek á sínum stað við orgelið.
Jón Guðmundsson og Geir Björnss í ham
Jón Guðmundsson að spila á skeiðar en hann er snillingur í þeirri gerð tónlistar. Geir Björnsson veislustjóri er einbeittur á gítarinn og Jóhann Morávek á sínum stað við orgelið (Úr myndasafni Þorrablót 2003)

16.01.2012 Fréttir

Krulludýrið kemst ekki

Tíminn líður hratt og nú er komið að einum stærsta viðburði ársins sem er eins og síðustu 34 árin að sjálfsögðu Þorrablót Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu.
 
Blótið fer fram í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi þann 4. febrúar n.k. og að sögn Nönnu Imsland þá verður þar dýrindis þorrahlaðborð, magnþrungin skemmtiatriði nefndarinnar og dansleikur með hljóms...sveitinni "Krulludýrið kemst ekki".
 
Að þessu sinni er nefndin sérstaklega vel skipuð en í henni eru þetta árið: Björn Heimir Moritz Viðarsson, Fanney Magnúsdóttir, Nanna Imsland, Ásdís Ólafsdóttir, Emil Morávek og Sigurður Ástvaldsson.
Veislustjóri að þessu sinni verður hinn óviðjafnanlegi sr. Baldur Kristjánsson sem mun messa yfir lýðnum eins og honum einum er lagið. Eins og alltaf þá eru allir Hornfirðingar velkomnir, brottfluttir sem og búandi! Frábærasta fólkið frá frábærasta stað landsins... það bara getur ekki klikkað! :)
 
Skráning fram á heimasíðunni www.xblot.net og hægt er að leggja beint inn á reikning Hornfirðingafélagsins. Miðaverð er 6500 kr.  Rknr. Hornfirðingafélagsins 1147-26-9898 - Kt: 520309-1520.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica