Niðurstöður KPMG um áhrif minna frumvarps um fiskveiðistjórnun
Á síðsta fundi bæjarráðs kynntu starfsmenn KPMG, þeir Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnason, niðurstöður sínur um afleiðingar af minna frumvarpi um fiskveiðistjórnun 70/2011.
Helstu niðurstöður KPMG um áhrif minna frumvarpsins á Hornafjörð eru:
- að veiðheimildir dragast saman sem nemur 581 þorskígildistonni sem er um 2,3% af heildaraflamarki á staðnum,
- að aflaverðmæti á staðnum lækkar um 190 m.kr., að samdrátturinn geti þýtt að sex störf tapist við veiðar auk afleiddra starfa og
- að sveitarfélagið verði af allt að 17 m.kr. í útsvartekjum sem eru 2,5% af útsvarstekjum sveitarfélagsins. Á móti kemur afli strandveiðibáta á Hornafirði sem þýðir að nettó dragist aflaheimildir saman um 450 þorskígildistonn.
Starfsmenn KPMG upplýstu að von væri á niðurstöðum um áhrif stærra frumvarpsins á næstu dögum
Meðfylgjandi er skýrsla KPMG um smærra frumvarpi, sjá hér.





Skrifa athugasemd