Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppir í Gautaborg
Fjölþrautakonan Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppir á sænska meistaramótinu innanhús í þraut sem fram fer í Gautaborg 14.mars.
Hún keppti á meistaramóti Íslands um síðustu helgi og komst á pall í öllum greinunum sem hún tók þátt í. Hún stórbætti árangur sinn í 60m grind þar sem hún átti 9,46 sek bætti hún í 9,25 sek og einnig bætti hún sig í kúluvarpi kastaði 12,54m en átti fyrir 12.42m.
Þessi árangur hennar gæti verið vísbending um að hún sé að bæta sig verulega í þraut og því gaman að fylgjast með henni í Gautaborg.





Skrifa athugasemd