Afhending styrkja og Menningarverðlauna
Afhending styrkja frá Sveitarfélaginu Hornafirði og árlegra Menningarverðlauna fyrir árið 2011 fer fram í Nýheimum fimmtudaginn 23. febrúar klukkan 16:00. Markmiðið með Menningarverðlaununum er að hvetja fólk til lista og menningarstarfs í heimabyggð. Menningarverlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og hafa einstaklingar, stofnanir og samtök hlotið þessi verðlaun í gegnum tíðina. Valið fer fram með þeim hætti að tilnefningar berast til Atvinnu – og menningarmálanefndar sem fer yfir þær og setur fram rökstuðning með niðurstöðu sinni. Boðið verður upp á kaffi og konfekt og hljómsveitin Dinnerdúkkurnar munu flytja nokkur lög. Allir velkomnir.
Í ár hlutu fimm einstaklingar tilnefningar til Menningarverðlauna en þeir eru:
Gísli Arason fyrir merkilegt starf innan menningarmála gegnum árin og uppbyggingu Byggðarsafns.
Eiríkur Hansson fyrir frábæran árangur í tengslum við Legó keppnina þar sem hann leiðir hvern hópinn eftir annan til sigurs.
Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson fyrir fórnfúst starf um áratugaskeið að tónlistarmálum á Hornafirði.
Heiðar Sigurðsson fyrir leiðandi starf innan Hornfirska Skemmtifélagsins
Elínborg Pálsdóttir fyrir listsköpun sína.
Handhafar Menningarverðlauna Austur-Skaftafellssýslu, síðar Menningarverðlaun Hornafjarðar, frá upphafi:
Fyrir árið Handhafi: Veitt:
1994 Leikfélag Hornafjarðar 1995
1995 Karlakórinn Jökull 1996
1996 Magnús J. Magnússon 1997
1997 Arnþór Gunnarsson 1998
1998 Guðlaug Hestnes 1999
1999 Albert Eymundsson 2000
2000 Barnakór Hornafjarðar 2001
2001 Jóhann Morávek 2002
2002 Gláma-Kím, Árni Kjartansson 2003
2003 Haukur H. Þorvaldsson 2004
2004 Gísli Sverrir Árnason 2005
2005 Nemendafélag FAS 2006
2006 Hornfirska Skemmtifélagið 2007
Þórbergssetur, Þorbjörg Arnórsdóttir og
Fjölnir Torfason
2007 Jack D. Ives 2008
2008 Hermann Hansson 2009
2009 Kristín Laufey Jónsdóttir 2010
2010 Þorsteinn Sigurbergsson og
Ragnar Arason





Skrifa athugasemd