Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum
Á síðasta fundi sínum ákvað skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að hrinda af stað vinnu við stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum.
Núgildandi stefna í þessum málaflokkum er komin til ára sinna enda var hún samþykkt árið 2002 og gilti til ársins 2010. Þörfin á endurskoðun á stefnu sveitarfélagsins í málaflokkunum er því sannarlega til staðar.
Skóla-, íþrótta- og tómsundanefnd mun stýra stefnumótunarvinnunni en forstöðumaður íþróttamannvirkja, Gunnar Ingi Valgeirsson og tómstundafulltrúi, Árni Rúnar Þorvaldsson munu halda utan um vinnuna í samstarfi við framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs, Stefán Ólafsson.
Opinn vinnufundur
Frá því að byrjað var ræða um endurskoðun stefnunnar í upphafi kjörtímabilsins þá hefur skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd sagt að leggja skul áherslu á almenningsíþróttir og jaðaríþróttir í nýrri stefnu sveitarfélagsins. Nefndin leggur einnig mjög mikla áherslu á að almenningur og þeir, sem starfa að æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum, komi að stefnumótunarvinnunni frá upphafi.
Fyrsta skrefið er að haldinn verður opinn vinnufundur, þar sem ætlunin er að stefna saman kjörnum fulltrúum, starfsmönnum sveitarfélagsins, sem vinna innan þessara málaflokka, aðilum, sem starfa innan íþróttahreyfingarinnar og að öðrum tómstundum, og almenningi. Unnið er að því að þessi fundur verði haldinn um miðjan mars.
Umsagnarferli
Þegar skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd hefur unnið tillögu að nýrri stefnu fyrir sveitarfélagið út frá þeim áherslum sem fram komu á opna vinnufundinum þá mun tillagan verða send hagsmunaaðilum til umsagnar. Almenningi verður einnig gefinn kostur á því að gera athugasemdir þar sem fyrirhugað er að birta tillöguna á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem áhugafólk getur kynnt sér tillöguna og gert athugasemdir við hana. Stefnt er að því að vinnuferlinu við gerð nýrrar stefnu fyrir sveitarfélagið ljúki með afgreiðslu bæjarstjórnar á tillögu skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar í júní.
Þátttaka mikilvæg
Þeir aðilar sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, eða hafa sérstaka reynslu eða þekkingu á málaflokkunum, sem stefnan nær til, eru hvattir til þess að setja sig í samband við Gunnar Inga Valgeirsson eða Árna Rúnar Þorvaldsson hafi þeir áhuga á taka þátt í ferlinu frá upphafi. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd og starfsmenn hvetja alla áhugasama til þess að fylgjast vel með framvindu mála og taka þátt í stefnumótunarvinnunni. Ljóst er að með því að virkja sem flesta til þátttöku stendur sveitarfélagið eftir með öflugri stefnu í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum til framtíðar.





Skrifa athugasemd