Fréttir
FAS
FAS

24.02.2012 Fréttir

Júlían D'Arcy með fyrirlestur í FAS

Í morgun var Júlían D'Arcy með fyrirlestur í Nýheimum. Júlían D'Arcy er prófessor í enskum bókmenntum og starfar við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Hann vinnur nú að þýðingu á bók meistara Þorbergs Steinarnir tala og hefur dvalið hér eystra þess vegna.

Júlían hitti nemendur í efstu áföngum í ensku í morgun. Þar talaði hann um bókina The Great Gatsby eftir F. Scott Fitzgerald en nemendur sem hafa lesið þá bók í FAS. Í fyrirlestrinum var m.a. fjallað um persónur og sögulegan bakgrunn.
Það er skemmst frá því að segja að þetta var stórskemmtilegur fyrirlestur þar sem Júlían fór á kostum og nemendur höfðu gaman af. Það er frábært að fá góða gesti eins og Júlían sem eru sérfræðingar á sínu sviði.    

www.fas.is

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica