Fréttir
Vakinn_merki1
Vakinn_merki1

05.03.2012 Fréttir

VAKINN er orðinn að veruleika

Nýtt gæða-og umhverfiskerfi fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi mun verða kynnt á Hótel Höfn miðvikudaginn 7. mars n.k.

Merkur áfangi náðist í sögu íslenskrar ferðaþjónustu þegar gæða- og umhverfiskerfið VAKINN var formlega tekið í notkun s.l. þriðjudag. Þróuð hafa verið gæðaviðmið fyrir allar greinar ferðaþjónustu en í fjölmörg ár hefur verið rætt um nauðsyn á slíku kerfi. Með VAKANUM fá ferðaþjónustuaðilar í hendur tæki sem getur verið þeim verkfæri og leiðsögn í átt til betri þjónustu og aukins öryggis.
 
Ferðamálastofa mun af þessu tilefni halda kynningarfund fyrir ferðaþjónustuaðila í Ríki Vatnajökuls n.k. miðvikudag á leið sinni í hringinn í kringum landið. Auk fyrirlesara frá Ferðamálastofu, Umhverfisráðgjöf Íslands, Landsbjörgu, Vinnueftirlitinu,  mun Sigurlaug Gissurardóttir frá Brunnhóli halda erindi um mikilvægi gæða- og umhverfismála, sem innlegg heimamanns og Tinna Björk Arnardóttir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Nýheimum halda erindi um rekstur og stjórnun.

VAKINN er afsprengi þróunarverkefnis sem iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að haustið 2008. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands og þannig hefur skapast breið samstaða innan greinarinnar um þennan mikilvæga málaflokk. Þá hafa fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki lagt lóð sitt á vogarskálina í undirbúningsferlinu.
Áhersla hefur verið lögð á að hafa kerfið eins einfalt og kostur er og sníða það þannig að það henti öllum. Þá hefur þátttökugjaldi einnig verið stillt í hóf, en það ræðst af umfangi rekstrar viðkomandi fyrirtækis. 

Nýr vefur VAKANS hefur einnig verið opnaður og er þar að finna allar nánari upplýsingar um kerfið, umsóknarform, hjálpargögn og fleira. 

Að sögn Öldu Þrastardóttur verkefnastjóra hjá Ferðamálastofu hvetur hún alla ferðaþjónustuaðila og þá sem málið varðar að koma á kynninguna á Hótelinu.
 
Sjá nánar dagskrá hér.

Heimasíða VAKANS 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica