Fréttir
Stebbi og Eyfi
Stebbi og Eyfi
Stebbi og Eyfi á ferð um Ísland

26.03.2012 Fréttir

Stebbi og Eyfi með tónleika í Hafnarkirkju

Á miðvikudagskvöld munu  Stebbi og Eyfi mæta til Hafnar og halda tónleika í Hafnarkirkju á ferð sinni um landsbyggðina.

Stebbi og Eyfi sendu frá sér geisladiskinn „Fleiri notalegar ábreiður“ fyrir síðustu jól og munu nú á vormánuðum heimsækja landsbyggðina og kynna diskinn með tónleikahaldi.

Ásamt því að flytja lög af nýja geisladiskinum munu hljóma margar af þeim dægurperlum, sem þeir félagar hafa sent frá sér bæði saman og í sitthvoru lagi, lög eins og  „Hjá þér“, „Líf“, „Undir þínum áhrifum“, „Okkar nótt“, „Álfheiður Björk“, „Dagar“, „Danska lagið“, „Allt búið“, „Ég lifi í draumi“, „Góða ferð“, „Þín innsta þrá“, „Draumur um Nínu“  o.m.fl. Einnig munu þeir félagar spjalla á léttum nótum við tónleikagesti og segja óborganlegar sögur úr bransanum.

Geisladiskurinn „Nokkrar notalegar ábreiður“, sem kom út árið 2006 fylgir með aðgöngumiða, meðan birgðir endast. Miðasala er við innganginn og kostar aðgöngumiðinn kr.2.900 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica