Fréttir
Afmælisár FAS gengið í garð
Afmælisár FAS gengið í garð

26.03.2012 Fréttir

Afmælisár FAS gengið í garð

Dagsetningin 20. mars er mikilvæg í sögu skólans en þann dag árið 1986 samþykkti framhaldsskólanefnd að hefja samningaviðræður við menntamálaráðuneytið um stofnun framhaldsdeildar í Austur-Skaftafellssýslu.

Í tilefni að því að á þessu ári verður skólinn 25 ára voru nemendur og aðrir í Nýheimum boðaðir á fund þar sem Eyjólfur skólameistari greindi frá því að nú væri afmælisárið formlega hafið. Zophonías fór yfir aðdraganda að stofnun skólans og hvenær hann var settur í fyrsta sinn. 
Afmælis skólans verður minnst á margan hátt á komandi vikum og mánuðum. Þó skólinn hafi verið starfandi í nálega 25 ár vantar hann þó ennþá skólasöng. Úr því skal nú bætt og af því tilefni verður efnt til samkeppni um skólasöng.
Vegna afmælisársins hefur verið opnuð sérstök síða þar sem ætlunin er að safna saman helstu upplýsingum tengdum þessum tímamótum.
Í lokin má geta að það er ekki bara skólinn sem fagnar afmæli á þessu ári. Í ágúst verða liðin tíu ár frá því að Nýheimar voru vígðir.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica