Fréttir
Skyndihjálparnámskeið á Höfn
Skyndihjálparnámskeið á Höfn
@fas.is

04.04.2012 Fréttir

Stórt skyndihjálparnámskeið á Höfn

Margir hafa eflaust tekið eftir því að í og við Nýheima hefur verið margt um manninn undanfarna daga. Síðasta miðvikudag hófst námskeið sem kallast Wilderness first responder og eru leiðbeinendur frá Landsbjörgu.

Þetta námskeið er liður í fjallamennskunámi sem er í gangi í FAS en þar er lögð áhersla á að þátttakendur geti brugðist við öllu því sem upp á getur komið í ferðum í óbyggðum. Þar sem stór hópur þátttakenda er frá Höfn var ákveðið að halda námskeiðið hér. Til að ná tilskyldum fjölda var björgunarsveitafólki boðin þátttaka. Nokkrir björgunarsveitarmenn eru frá Höfn en hinir koma víðs vegar að af landinu.
Námskeiðið er 76 klukkustundir og stendur í átta daga. Á námskeiðinu er m.a. farið í endurlífgun, mat á alvarleika áverka og hvernig eigi að koma sjúklingi í burtu. Til að öðlast réttindi þurfa þátttakendur að standast próf og mega þá framkvæma ýmsar aðgerðir í óbyggðum s.s. að setja í lið, sprauta með adrenalíni og gefa ákveðnar tegundir lyfja.

www.fas.is

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica