Bjarney sigraði í skeiðkeppni
Framhaldsskólamótið í hestaíþróttum var haldið þann 31. mars s.l. í reiðhöllinni hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ.
Að þessu sinni komu þátttakendur frá 16 framhaldsskólum og voru skráningar rúmlega 100. Keppt var í tölti, fjórgangi og fimmgangi auk þess sem frjáls skráning var í skeið.
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir og Brynja Rut Borgarsdóttir tóku þátt fyrir hönd FAS að þessu sinni. Þær voru skráðar í alla flokka. Brynju Rut gekk ágætlega í tölti á hestinum Neista frá Leiðólfsstöðum, en hún endaði einu sæti frá úrslitum eða í 11.sæti.
En það var Bjarney Jóna sem stal senunni í skeiði því hún gerði sér svo lítið fyrir og sigraði á hestinum Grun frá Hafsteinsstöðum en hann er í eigu Pálma Guðmundssonar.
Þetta er stórglæsilegur árangur og besti árangur FAS á mótinu hingað til. Fyrir sigurinn fær Bjarney farandbikar sem mun verða geymdur í FAS í eitt ár. Að auki fékk Bjarney bikar til eignar og gjafabréf fyrir fóðurbæti.
Við óskum Bjarneyju til hamingju með glæsilegan árangur.





Skrifa athugasemd