Fréttir
FAS á Hvannadalshnjuk
FAS á Hvannadalshnjuk

09.05.2012 Fréttir

Nýjungar og styrkir

Í síðustu viku fékk FAS styrk frá Sprotasjóði sem er sjóður menntamálaráðuneytisins til skólaþróunar. Styrkurinn nemur einni og hálfri milljón og verður notaður til að þróa og byggja upp fjarnámsbraut til stúdentsprófs með áherslu á umhverfis- og auðlindafræði.

Auk FAS standa Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Menntaskólinn á Egilsstöðum og Menntaskólinn á Tröllaskaga að þessu verkefni.
Sprotasjóður styrkti einnig verkefnið Lærdómssamfélagið Hornafjörður um tvær milljónir. Það er verkefni sem tengist inn á öll skólastig frá leikskóla til framhaldsskóla þar sem áherslan er að samþætta grunnþætti skólastarfs svo sem um lýðræði og jafnrétti. Auk skólastiganna þriggja eru Háskólasetrið, Tónskólinn og Þekkingarnetið þátttakendur í þessu verkefni. Verkefnið nær yfir næsta skólaár og verkefnisstjóri er Sigurður Mar Halldórsson.
Næsta haust fer einnig af stað nám í fjallamennsku sem verður hluti af viðurkenndu framhaldsskólanámi. Tilraunakennsla í þessu námi hefur staðið frá því í desember 2010 og hefur hún nýst til að þróa og betrumbæta þetta nám. Námið í fjallamennsku tekur eitt ár og er áherslan lögð á verklegt útinám á fjöllum og í óbyggðum.

Auk þessa er unnið að því að nýta gamla vöruhús KASK til eflingar verk- og listnáms. Þar er um að ræða samvinnu sveitarfélagsins og FAS. 

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica