Fréttir
FAS_Fjallamennska
FAS_Fjallamennska
mynd@FAS

01.06.2012 Fréttir

Fjallamennskunám í boði í FAS

Næsta skólaár boðið upp á fjallamennskunám í boði í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Um er að ræða 60 eininga sérnám sem tekur eitt ár að ljúka.

Áhersla er á verklegt útinám á fjöllum og í óbyggðum og vettvangsferðir með kennara eða á eigin vegum. Einnig eru bóklegar námslotur sem kenndar verða í FAS. Náminu lýkur með starfsþjálfun í ferðaþjónustufyrirtæki sumarið 2013.

Meðal bóklegra námsgreina eru grasafræði, jarðfræði, jöklafræði og veðurfræði, saga fjallamennsku, skipulag, rekstur og markaðssetning ferðaþjónustufyrirtækja.
Meðal verklegra greina eru kortalestur og rötun, ísklifur, þverun straumvatna, vetrarferðamennska, jöklaferðir, snjóflóðaleit og fyrsta hjálp í óbyggðum.
Síðastliðinn vetur var fjallamennskunámið kennt í tilraunaskyni við skólann og í vor luku ellefu nemendur námi í fjallamennsku frá FAS.
Fjallamennskunámið hentar þeim sem vilja öðlast alhliða hæfni í fjallamennsku, starfsfólki í ferðaþjónustu og sem sersvið í almennu stúdentsnámi.

Nánari upplýsingar um skipulag og námstilhögun fjallamennskunámsins ásamt brautarlýsingu er á www.fas.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica