Fréttir
Flutningur á Pakkhúsinu
Flutningur á Pakkhúsinu
Kranninn sem mun lyfta húsinu
Mynd 1 af 3
1 2 3

06.06.2012 Fréttir

Gamlabúð flutt síðdegis í dag

Í dag, miðvikudag mun Gamlabúð verða flutt frá þeim stað sem hún stendur við Hafnarbrautina út á hafnarsvæðið við hliðina á Pakkhúsinu.

Leiðin sem farin verður með húsið er frá núverandi stað upp á Hafnarveginn, þaðan er keyrt með húsið í átt að Brautarholti, framhjá litla dæluhúsinu gengt Olís, síðan keyrt öfugu megin til að milda beygjuna inn á Víkurbraut, þaðan verður farið   meðfram íþróttahúsinu og íþróttasvæðinu og framhjá Vélsmiðjunni að nýjum grunni Gömlubúðar.

Það er ákaflega mikilvægt að þeir sem ætla fylgjast með flutningnum haldi sig ávallt í öruggri fjarlægð við flutninginn.  Best er að safnast saman á hólum og hæðum, svo sem upp á Fiskhól, hólnum við Þjónustumiðstöð N1 við Víkurbrautina, inn á
Íþróttavelli og ofan við Hafnarbrautina í átt að gömlu sundlauginni.

Geir Þorsteinsson f.h Þingvaðs sem er með heildarverkið og stýrir öðrum verktökum. Jón Kjartansson hjá Rósaberg sér um að aka húsinu. Vélsmiðja Hjalta Einarsson sér um hífingu og áætlað er að það taki tvo daga að tjakka því niður á núveranandi grunn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica