Ferð til Söderhamn í Svíþjóð
Á fundi starfsmanna í Nýheimum á vorönn 2011 var ákveðið að kjósa í nefnd sem hefði það hlutverk að finna sambærilegan stað og Nýheimar með svipað hlutverk og starfsemi.
Tilefni ferðarinnar var að árið 2012 fagna Nýheimar 10 ára afmæli og FAS 25 ára afmæli sínu. Athuga átti hvort hægt væri að finna sambærilegan stað með það í hyggju að sjá hvað aðrir eru að gera og eining að miðla af okkar reynslu.
Undirbúningshópurinn hóf strax leit að öðrum „Nýheimum“ en það reyndist þrautinni þyngra. Á endanum þóttist undirbúningshópurinn finna slíkan stað í Svíþjóð í Söderhamn sem þýðir „Suðurhöfn“ en þar er stofnunin CFL (Centrum för flexibelt lärande). Þar á bæ kættust menn þegar ósk frá okkur barst um samstarf og hugsanlega ráðstefnu. Í um ár hefur undirbúningshópurinn verið í sambandi við CFL í Söderhamn og á þeim tíma hefur heimsókn og dagskrá verið undirbúin. Ráðstefnan var haldin 30. maí til 1. júní s.l. Alls fóru 22 frá Höfn í ferðina. Þar af voru 14 þátttakendur frá mismunandi stofnunum í Nýheimum, fjórir fulltrúar frá sveitarfélaginu og fjórir makar.
Fyrsta daginn var sagt frá starfseminni í CFL í Söderhamn og hvernig bæjaryfirvöld þar reyna að styrkja starfsemina og efla nýsköpun í atvinnustarfsemi. Næsta dag var komið að okkur að segja frá starfseminni í Nýheimum. Það kom flestum ef ekki öllum á óvart hversu margt staðirnir eiga sameiginlegt. Þar má sem dæmi nefna að svipuð hugmyndafræði er að baki hjá báðum aðilum með svipaðar áherslur. Báðir staðirnir eru t.d. að reyna að skapa fjölbreyttara atvinnulíf þannig að unga fólkið vilji búa þar áfram og sjá menntun sem lykilatriði í framtíðar uppbyggingu atvinnugreina og þátttöku almennings í uppbyggingu sterkara samfélags. Þá fagna bæði CFL og Nýheimar10 ára afmæli sínu á þessu ári.
Eftir hádegi fyrstu tvo dagana gafst kostur á að skoða ýmsa starfssemi, s.s. nýsköpun, skóla, afþreyingarstarf fyrir ungmenni og menningarstarf í sveitarfélaginu.
Síðasta daginn var svo verið að skoða hugsanlega samstarfsfleti en alls komu 15 uppástungur að ýmis konar sameiginlegum verkefnum. Þess má geta að nú þegar er farið að vinna í fyrsta verkefninu en nemendur í heilsugeira hafa áhuga á því að koma til Hafnar í byrjun október og skoða hvernig er staðið að heilsugæslu og þjónustu við sjúklinga hér. Önnur hugsanleg samstarfsverkefni eru t.d. kennaraskipti og ýmis rannsóknarverkefni sem snúa meðal annars að þeirri hugmyndafræði sem þessi setur eru byggð á.
Íslensku þátttakendurnir eru mjög ánægðir með góðar móttökur og viðmót. Ytra komu tæplega 30 manns að því að undirbúa heimsókn okkar. Ljóst er að miklu máli skiptir fyrir dreifðar byggðir að geta byggt upp þekkingu innan „héraðs“ þar sem lagður er grundvöllur að frekari uppbyggingu og þróun á samfélögunum okkar. Nýheimar og CFL eru þekkingarsetur sem vinna að eflingu og þróun á fjölbreyttu sviði með sameiginlegt markmið. Við heimsóknir eins og þessa myndast tengsl þar sem hægt er að vinna að stærri verkefnum en við ein og sér gætum ráðið við og vonum við að þessi ferð marki upphafið að farsælu og spennandi samstarfi milli Hafnar og Suðurhafnar í Svíþjóð.
(Undirbúningshópurinn: Hjördís Skírnisdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir og Sandra Björg Stefánsdóttir)




Skrifa athugasemd