Fréttir
Bætt ásýnd hafnarsvæðisins
Bætt ásýnd hafnarsvæðisins
Klöpp og setstallar
Mynd 7 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

09.06.2012 Fréttir

Hornfirðingar taka höndum saman

Næstu daga taka Hornfirðingar höndum saman um að byggja upp og bæta ásýnd hafnarsvæðisins á Höfn með það að markmiði að skapa áhugaverðan og fallegan stað fyrir ferðamenn jafnt sem heimafólk.

Dagana 15. og 16. júní, föstudag og laugardag, verður tekinn upp sjónvarpsþáttur RÚV í Sveitarfélaginu Hornafirði og gengur þátturinn út á að sýna samtakamátt íbúa í að byggja upp og kynna með stolti sína heimabyggð. Ákveðið var að leggja tvo þætti undir Hornafjörð

Á kynningarfundi sem haldinn var í Nýheimum í gær mættu um 60 manns. Þar kynntu Dagný Bjarnadóttir landslagshönnuður og Örn Smári Gíslason grafískur hönnuður verkefnið.

RÚV leggur til hönnunarteymi sem samanstendur af landslagshönnuði, innanhúshönnuði, vöruhönnuði og grafískum hönnuði og veita þeir ráðleggingar og hugmyndir varðandi úrbætur. Síðustu helgi tók RÚV upp samskonar þátt í Vestmannaeyjum þar sem Eyjamenn tóku höndum saman um að byggja upp og fegra hafnarsvæðið hjá sér, og tókst verkefnið með eindæmum vel. Afraksturinn var að hluta sýndur í fréttum RÚV.

Á meðfylgjandi teikningum gefur að líta sýn hönnuða á uppbyggingu svæðisins. Verkefninu hefur verið skipt upp í verkþætti yfir annars vegar það sem unnið verður í undirbúningi næstu daga og hinsvegar það sem unnið verður á föstudag og laugardag meðan á upptökum stendur. Klukkan 16 á laugardaginn verður svo blásið í flautur og stoppað og litið yfir afrakstur síðustu 24 klukkustunda.  Til að láta þetta verða að veruleika þurfum við að fá 200 – 400 manns inn á svæðið til að taka þátt. Allir sem vilja leggja hönd á plóg fyrir sveitarfélagið okkar eru beðnir um að senda tölvupóst á haukuri@hornafjordur.is eða mæta niður í áhaldahús á milli 8 og 17 næstu daga.

Meðan á framkvæmdum stendur á föstudag og laugardag verður líf og fjör á Heppunni og fjölmargir viðburðir í gangi, á borð við tónlistaratriði, matar- og handverksmarkað og matarveislur. Þessu verður öllu gert skil í sjónvarpsþættinum. Einnig verða upptökur fyrr í vikunni á ferðaþjónustustöðum í sveitarfélaginu og viðtöl við matvælaframleiðendur.

Undirbúningsvinna stendur yfir næstu daga og verða svo föstudagurinn og fyrripartur laugardags undirlagðir af framkvæmdum sem verða partur af upptökum fyrir þáttinn. Matarveislur verða haldnar á föstudag og laugardag fyrir alla sem leggja hönd á plóg. Föstudagurinn verður tileinkaður landbúnaði þar sem grillað verður lambakjöt úr Ríki Vatnajökuls. Vertarnir á Heppunni ásamt Fosshótelum munu bjóða upp á humarsúpu í hádeginu á laugardag fyrir mannskapinn og Ingólfur á Kaffihorninu verður með fiskihlaðborð kl. 18 á laugardag í samstarfi við Skinney Þinganes, Lions og sveitarfélagið.

Mætum öll niður á hafnarsvæði á næstu dögum, tökum þátt og sýnum samtakamátt Hornfirðinga í verki. Fylgist endilega með á Facebook síðunni Hornfirðingar í Ríki Vatnajökuls, þar eru upplýsingar um verkefnið, teikningar o.fl.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica