Hornfirðingar tökum höndum saman
Það hefur vart farið framhjá Hornfirðingum að þáttagerðarmenn á vegum RÚV eru staddir á svæðinu í þeim tilgangi að taka upp sjónvarpsþátt sem gengur út á það að draga fram mannlíf í sveitarfélaginu og fylgja eftir úrbótum á hafnarsvæðinu. Markmið úrbótanna er að skapa áhugaverðan og fallegan stað fyrir íbúa Hornafjarðar sem og ferðamenn sem hingað koma, með aðstoð heimamanna. Fyrirhugaðar eru talsverðar framkvæmdir sem hófust með flutningi Gömlu búðar í gær, miðvikudaginn 13. júní og er verkefnalistinn orðinn langur. Hér með eru allir sem vilja hvattir til þess að mæta á höfnina seinni partinn í dag, á morgun og laugardag og finna sér verkefni við hæfi og taka þátt í því að gera bæinn okkar fallegri og skemmtilegri heim að sækja.
Hægt er að fylgjast með á fasbókarsíðunni Hornfirðingar í Ríki Vatnajökuls
Starfsmaður verður á svæðinu og úthlutar verkefnum til þeirra sem vilja en áhersla verður á að mála sem mest í dag vegna veðurs. Á morgun og á laugardag verður síðan tónlist og matur í boði á meðan unnið er auk þess sem hægt verður að fylgjast með gangi mála á EM fyrir þá sem vilja.





Skrifa athugasemd