Fréttir
Heppa matarhöfn
Heppa matarhöfn
Allt á fullu við undirbúning

15.06.2012 Fréttir

Safn fólksins - tekið á móti munum

Nú gefst Hornfirðingum tækifæri á að setja muni sem tengdir eru sjávarútvegi staðarins á sitt eigið safn.

Hönnuður Bláalónsins. Sigurður Þorsteinsson hefur veg og vanda með þessu verkefni og er það í höndum Hrafnkels Ingólfssonar, þ.e. Kela sem kenndur er við Hafnarbúðina að taka á móti safnmunum.

Þetta þurfa ekki að vera stórir  munir,  aðeins nokkrir en það þarf að fylgja þeim saga um hvaðan þeir séu og hvernig þeir tengjast sjávarútvegi staðarins.

Tekið verður á móti mununum á morgun laugardag frá kl.12-16 milli Lönguvitleysu og portsins, þ.e. bak við gömlu síldarbraggana.

Nú er um að gera að leita að skemmtilegum munum og taka þátt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica