Fréttir
Höfn
Höfn
Séð frá Hótel Höfn á góðum sumardegi (úr myndasafni)

28.06.2012 Fréttir

Raf-Horn tekur við þjónustu Mílu og Símans á Hornafirði

Frá og með 1. júlí N.K. mun Raf-Horn ehf taka við þjónustu Mílu og Símans sem áður var hjá Rafteymi ehf. Þjónustusvæðið er frá Skeiðarársandi til Djúpavogs og munu þeir starfsmenn sem sinnt hafa þessari þjónustu flytjast yfir til Rafhorns.

Þessi samningur mun styrkja stöðu Rafhorns enn frekar. Sú þekking sem kemur inn með nýjum starfsmönnum er kærkomin í þá starfsmannaflóru sem er hjá fyrirtækinu í dag. Einnig mun fyrirtækið opna formlega slökvitækjaþjónustu sína að Bugðuleiru 6 nú um mánaðarmótin.

Verkefnastaða Raf-Horns er góð um þessar mundir og eru menn að vinna að breytingum í Heppuskóla, nýbyggingu á Höfn ásamt því að 4-5 menn eru að klára þjónustuhús fyrir HB-Granda á Vopnafirði. Á haustmánuðum verður unnið við háspennuketil hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði og hjá HB-Granda á Akranesi. Ásamt ýmsum öðurm verkefnum sem koma upp.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica