Fréttir
Krosseyjarvegur 17
Krosseyjarvegur 17
(Mynd S.Á. Scheving)
Mynd 6 af 7
1 2 3 4 5 6 7

06.07.2012 Fréttir

Jón Bjarnason kominn til að vera

Vegfarendur sem hafa keryrt fram hjá Sigurðar Ólafssonar húsinu (Krosseyjarvegur 17) hafa tekið eftir glæsilegum málverkum sem eru utan á húsinu.

Nú hefur Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegsráðherra verið málaður á vegg hússins í skötuselslíki þar sem hann syndir meðal hákarla, steinbíts, lúru, humars svo eitthvað sé nefnt.

Jón er m.a. þekktur fyrir í tíð sinni að hafa sett frumvarpið þar sem skötuselsveiðar voru gefnar frjálsar þrátt fyrir að ýmsir höfðu þegar verið búnir að fjárfesta í veiðikóta sem varð verðlaus,  hvort það sé ástæðan fyrir því að hann fær þann heiður að vera málaður í skötuselslíki skal ósagt.

Listamaðurinn á bak við málverkið af Jóni og hinna málverkana á húsinu er Sívar Árni Scheving sem er m.a. þekktur listræna hæfileika.  Að sögn Sívars Árna þá er það alger lúxus að geta leikið sér í sumarfríinu við að mála.
Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica