Fréttir
Landgræsluverðlaun 2012
Landgræsluverðlaun 2012
Verðlaunahafar ásamt Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Andrési Arnalds fagmálastjóra Landgræðslu ríkisins. Ljósm: Almar Sigurðsson.
Mynd 1 af 2
1 2

24.08.2012 Fréttir

Landgræðslufélag Öræfinga hlaut landgræðsluverðlaunin 2012

Landgræðslufélag Öræfinga hélt upp á 20 ára afmæli í gær. Við þau tímamót var félaginu afhent landgræðsluverðlaunin fyrir vel unnin störf og sérstaklega framlag ungmenna í starfinu.

Ungmenni í Öræfum hafa frá árinu 1993 unnið mikilvægt uppgræðslustarf í Öræfum og borið hita og þunga af starfi Landgræðslufélags Öræfinga.
Það er óvenjulegt en afar áhugavert við þetta starf að unglingarnir geta byrjað í landgræðsluvinnunni árið sem þau verða 10 ára. Öll ungmenni sem eru á svæðinu, þó að þau séu ekki búsett þar, fá að taka þátt í landgræðslustarfinu til jafns við þá sem eiga heima í Öræfum. Hóparnir hafa sýnt einstakan dugnað og metnað, oft við erfiðar aðstæður og í misjöfnum veðrum. Á stundum hafa þau orðið að ganga í um klukkutíma með bakkaplöntur, áburð og verkfæri á vinnusvæðið, þar sem sumt af þessu landi er mjög erfitt yfirferðar og ekki fært vélknúnum ökutækjum. Þau hafa sýnt mikinn metnað í starfi.

Starf ungmennanna í Öræfum er afar áhugaverð fyrirmynd á landsvísu, verðugt dæmi um hvernig hægt er að kveikja varanlegan áhuga á velferð landsins.

Landgræðslufélag Öræfinga var stofnað árið 1992. Það er fyrsta landgræðslufélagið. Megin tilgangur félagsins er að koma á sem samfelldustum nytjagróðri á undirlendi sveitarinnar auk fjallahlíða þar sem gróðurskilyrði og aðstæður til ræktunar gera það kleift.

Fyrstu verkefni félagsins voru að friða um 5.000 ha lands með girðingu frá Hofi austur fyrir Hnappavelli og hefja uppgræðslu á því svæði. Einnig hefur félagið sett upp skógræktargirðingu við Svínafell og sáð melfræi í sandinn norðvestur af Ingólfshöfða.

Landgræðslufélagið hélt upp á 10 ára starfsafmæli sitt 17. ágúst 2003. Af því tilefni var farið í skoðunarferð um stærsta landgræðslusvæði félagsins, á Skerjunum milli Hofs og Hnappavalla og sáningar skoðaðar. Einnig afhjúpaði Margrét Hauksdóttir skilti um landgræðslufélagið. Félagið fékk einnig landgræðsluverðlaunin árið 1998.

Plantað hefur verið 12-15 þúsund plöntum árlega. Starfsemin er fjármögnuð með styrkjum, m.a. frá Sveitarfélaginu Hornafirði, Suðurlandsskógum og Landbótasjóði Landgræðslunnar auk félagsgjalda.

www.land.is

 


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica