Fréttir
Leirusvæðið
Leirusvæðið
Yfirlitmynd
Mynd 2 af 2
1 2

05.09.2012 Fréttir

Aðgerðir á Leirusvæði

Vegna foks á lausu efni af því svæði sem dælt var úr Hornafjarðarhöfn síðasta vor hafa nokkrar lausnir verið skoðaðar undanfarna daga. 

Á fundi starfsmanna sveitarfélagsins og fulltrúa íbúa Leirusvæðisins var ákveðið að gera tilraun sem fæli í sér að dæla lífrænum efni á svæðið með þeirri trú að þannig myndi laust efni bindast fast og góður jarðvegur myndast fyrir sáningu næsta vor.  Fyrst verður gerð tilraun með að dreifa kúamykja á hluta svæðisins nú strax í dag og meta árangurinn í framhaldinu.  Þessu kann að fylgja einhver óþægindi fyrir í íbúa vegna lyktar sem ætti alveg að hverfa á nokkrum dögum.

Í sumar var ráðist í að þökuleggja á svæðinu og verður því haldið áfram næstu daga.  Ásamt því er unnið að hönnun og kostnáðaráætlun vegna frágangs á götum og gangstéttum á Leirusvæði sem tekið verður til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar í haust.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica