Fréttir
Merki FAS
Merki FAS
Merki FAS hannað af Daníel Imsland

20.09.2012 Fréttir

Nemendafélag FAS eignast merki

Síðastliðinn vetur var mikil umræða innan fulltrúaráðs NemFAS um að nemendafélagið þyrfti að eignast sitt eigið merki eins og flest öll nemendafélög annarra skóla.

Þess vegna var það eitt af fyrstu verkum fulltrúaráðsins nú í haust að skipuleggja kosningu um merki fyrir félagið.
Haft var samband við grafískan hönnuð og hann beðinn um að senda inn hugmynd að merki, þá var einnig auglýst eftir tillögum á meðal nemenda skólans. Þrjá tillögur bárust og því var efnt til kostninga á miðvikudaginn í síðustu viku. Kjörsókn var góð en að sjálfsögðu gátu eingöngu meðlimir í nemendafélagi FAS kosið.
Mesta kosningu hlaut glæsilegt merki eftir Daníel Imsland og var það kynnt með pompi og prakt á afmælishátíð FAS síðastliðinn föstudag. Þess má geta að Daníel ætlar að gefa nemendafélaginu vinnu sína og er það mikill styrkur fyrir nemendafélagið. Daníel er hér með þakkað kærlega fyrir.

www.fas.is

Heimasíða Dimms

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica