Fréttir
FAS
FAS
Heilakrufning í FAS (mynd:FAS)

20.09.2012 Fréttir

Heilinn krufinn í FAS

Í áfangunum LÍF103 er m.a. verið að fjalla um líkamsstarfsemi dýra og plantna. Síðustu dagana hafa nemendur verið að læra um taugakerfið og heilann.

Það var því við hæfi að nýta tækifærið og skoða þessi líffæri með eigin augum. Í morgun var náð í haus af nýslátruðum hrútspjakki og hann skoðaður. Fyrst hvernig hausinn festist við hryggjarliðina og hvernig taugarnar liggja upp í haus. Að því loknu var hausinn sagaður í tvennt og heilinn skoðaður.

Nemendur eru sammála um að það sé gott að tengja saman fræðin og raunveruleikann og skoða með eigin augum það sem er verið að lesa um í náminu.  


www.fas.is 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica