Fréttir
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
Mynd 2 af 3
1 2 3

02.10.2012 Fréttir

Valin í Ólympíuhópinn til Brasilíu 2016  

Sveinbjörg Zophoníasdóttir frjálsíþróttakona okkar Hornfirðinga var í dag valin í Ólympíuhóp  Frjálsíþróttasambands Íslands.

Sveinbjörg er bæði valin í sjöþraut og langstökk. Hópurinn er valinn með það fyrir augum að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana sem fara fram í Brasilíu 2016.
Eins og fram hefur komið hefur Sveinbjörgu gengið afskaplega vel í íþrótt sinni á síðustu árum og í sumar setti hún Íslandsmet í langstökki í sínum flokki og náði 2. besta árangri íslenskrar konu í sjöþraut frá upphafi. Einnig varði hún Norðurlandameistaratitil sinn í langstökki og náði lágmarki á Evrópumeistaramót U22 ára sem fram fer í Finnlandi á næsta ári. Við höfðum samband við Sveinbjörgu og kvaðst hún vera mjög sátt við sig og sinn árangur en jafnframt vildi hún koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu fyrirtækja og einstaklinga sem hafa styrkt hana og stutt við bakið á henni á undanförnum árum, án þeirra hefði hún ekki getað þetta sem hún er að gera í dag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica