Fréttir
FAS
FAS
Í líffræðitíma í FAS (MYND FAS)

22.10.2012 Fréttir

Áfram krufið í FAS 

Í líffærafræðinni LÍF103 er haldið áfram að fjalla um líffæri. Þar notfæra nemendur og kennari sér að nú er sláturtíð í fullum gangi og því gott aðgengi að ýmsum líffærum.

Fyrir nokkru var taugakerfið og heilinn skoðaður og nú var röðin komin að blóðrásarkerfinu og lungunum. Nemendur byrjuðu á því að skoða uppbyggingu á hjarta og hvernig það skiptist í hólf. Einnig var skoðað hvaða leið blóðið fer þegar það kemur inn í líkamann. Því næst var sjónum beint að því hvernig öndun fer fram. Einn úr hópnum tók að sér að blása í lungað til að sjá hvað það gæti þanist út.
Víst er að nemendur læra mun betur með því að geta skoðað það sem er verið að fjalla um hverju sinni. Einhverjum fannst þó lyktin ekki góð.  

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica