Góðir gestir frá Laugum
Starfsfólk frá Laugum heimsækir FAS. Í morgun komu til okkar kennarar og starfsfólk frá Framhaldsskólanum á Laugum.
Þessi ferð er liður í yfirreið um Austfirði þar sem gestirnir skoða aðra skóla og kynna sér starfsemina þar. Að mörgu leyti eiga þessir skólar samleið vegna svipaðs nemendafjölda.
Þegar gestirnir komu var byrjað á því að kynna skólann og Nýheima. Því næst var gengið um húsið og komið við í mismunandi stofnunum. Lengst var staldrað við í Menningarmiðstöðinni og í kjölfarið var Svavarssafn skoðað. Í hádeginu snæddi svo starfsfólk skólanna saman.
Gestirnir komu færandi hendi og færðu skólanum að gjöf Sögu Laugaskóla 1925 - 1988 eftir Steinþór Þráinsson. Nú eftir hádegið liggur svo leiðin austur á bóginn en á morgun verður farið í heimsóknir bæði í ME og VA.
Við þökkum gestunum fyrir komuna og óskum þeim góðrar ferðar.
www.fas.is





Skrifa athugasemd