Fréttir
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

05.11.2012 Fréttir

Fundur um eflingu Nýheima á Suðausturlandi.


Á afmælisráðstefnu FAS og Nýheima í október sl. skrifuðu  atvinnu- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra ásamt bæjaryfirvöldum og stofnunum í Nýheimum undir viljayfirlýsingu um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar.  

Þann 26. október var haldinn fyrsti samráðsfundur í framhaldi yfirlýsingarinnar, þar sem allir tengdir aðilar komu frá fyrrgreindum ráðuneytunum, bæjaryfirvöldum og stofnunum Nýheima.  

Á fundinum kom fram mikilvægi  þess að vinna framkvæmdaráætlun fyrir Nýheima næstu 10 árin hvernig Nýheimar geti ýtt undir fjölbreyttara atvinnulíf, aukið framboð á menntun og auðgað menningu samfélagsins.   
Eitt markmið verkefnisins er að leggja áherslu á ævimenntun og brjóta skil milli skólastiga og aldurs og leggja áherslu á fjarnám og framhaldsfræðslu á háskólastigi.
Lögð er áhersla á að móta ferðaþjónustu enn frekar með þematengdri þjónustu fyrir ferðamenn, þar sem matar,-ljósmynda,-fugla og veiðiferðamennska verði efld. Þá verði ímynd Vatnajökulsþjóðgarðs styrkt með því að tengja starf hans við atvinnulíf og samfélag . Þegar hefur verið ákveðið að stofna náttúrustofu þar sem meðal annars veðrur lögð áhersla á uppbyggingu áningastaða.
Þá er stefnt að bæta aðstöðu list- og verknáms.
Næsti samráðsfundur verður 7. nóvember nk. en stefnt er að vinnunni ljúki í byrjun desember.





BB

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica