Minningartónleikar í Nýheimum í kvöld
Í Kvöld verða forvarnar-tónleikar til minningar um Hallgerði Valsdóttur sem lést fyrir aldur fram vegna ofneyslu eiturlyfja sem hún barðist við í mörg ár. Vinkona hennar Margrét Einarsdóttir langar að minnast hennar og vekja athygli á þessum vágesti sem fíkniefni eru og geta komið við hjá hverjum sem er.
Í tilefni þess hefur Margrét hóað saman í stóra kvenna tónlistarveislu í salnum í Nýheimum í kvöld fimmtudag 15. nóvember kl.20:30. Þar mun Margrét koma fram ásamt vinkonum sínum, þeim Þórgunni, Guðrúnu Femu, Snæju og hljómsveitinni Dinnerdúkkunum en hana skipa, Helga Bogga, Ragga, Ninna og Erna Gísla.
Ókeypis aðgangur verður á tónleikana en tekið er við frjálsum framlögum til styrktar forvarnarstarfi. Kvennakór Hornafjarðar mun sjá um kaffi og vöfflusölu sem fjáröflun fyrir kórinn.
BB





Skrifa athugasemd