Opinn fundur um fjárhagsáætlun á Smyrlabjörgum föstudaginn 15. nóv.
Kynningarfundir um fjárhagsáætlun fyrir árin 2013-2016 standa yfir þessa dagana. Fundur var haldin á Hótel Höfn fimmtudaginn 15. nóvember og var vel mætt á fundinn, viðstöddum var boðið upp á súpu á meðan kynningin fór fram.
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri kynnti fjárhagsáætlun og stefnu sveitarfélagsins næstu þrjú árin og fór yfir 10 ára áætlun. Eins og fram hefur komið er staða sveitarfélagsins í nokkuð góðu horfi hvað varðar skuldastöðu þrátt fyrir framkvæmdir síðustu ár.
Næsti kynningarfundur verður á Smyrlabjörgum föstudaginn 16. nóvember kl. 12:00 og verður boðið upp á súpu, brauð og kaffi á meðan kynning fer fram. Fólk er hvatt til að mæta á fundinn og kynna sér stöðu og stefnu sveitarfélagsins.
BB





Skrifa athugasemd