Jólamarkaður og stemming um allan bæ.
p>Undanfarin ár hafa Hornfirðingar safnast saman fyrsta laugardag á aðventunni, slegið upp markaði og notið jólastemningar og munu ekki bregða út af vananum þessa helgi.
Jólamarkaður verður opnaður á morgun laugardaginn 1. des. kl. 13:00 við ráðhúsið þar sem settir hafa verið upp söluhjallar. Síðustu ár hefur markaðurinn verið í Nýheimum og Miðbæ en ákveðið var að brydda upp á þessari nýbreytni sem vonandi verður tekið vel hjá íbúum sveitarfélagsins.
Jólamarkaðurinn er orðinn ómissandi hluti jólaundirbúningsins og skemmtilegt krydd í tilveruna hjá íbúum Hornafjarðar og gestum þeirra. Margt mun verða á boðstólnum allt frá hönnun, heimagerðum munum og matvörur beint frá bónda og jólatrésala verður þar þegar nær dregur jólum. Einnig munu aðrar verslanir, listafólk og hinir ýmsu aðilar taka þátt í að skapa jólastemmingu um allan bæ.
Jólamarkaðurinn verður opinn laugardagana 1., 8., 15., og 22. desember klukkan 13-16. Þá eru hönnuðir, veitingastaðir og verslanir með jólamarkaði útum allan bæ.
Þá verður kveikt á jólatré Hafnar á sunnudag þar verður mikil og góð dagskrá þar sem jólasveinar verða á kreiki. Lúðrasveit Hornafjarðar mun leika jólalög, Kristín Gestsdóttir verður með hugvekju. Börn úr leikskólunum munu einnig stíga á stokk og verða með jólaskapið í farteskinu. Sera Gunnar Stígur Reynisson verður með ávarp og karlakór Hornafjaðrar syngur jólalög. Nemandi úr Hafnarskóla tendrar jólatréð.
BB





Skrifa athugasemd