Nemendafélag FAS hlýtur viðurkenningu
Nemendafélag FAS hlaut þann heiður síðast liðinn fimmtudag að vera veitt viðurkenning fyrir öflugt og uppbyggilegt félagsstarf. Viðurkenninguna veitti Styrktar- og menningarsjóður Sparisjóðs Vestmannaeyja.
Það voru þær Sólveig Valgerður forseti NemFAS og Róslín Alma varaforseti sem veittu viðurkenningunni móttöku ásamt Söndru Björgu félagsmálafulltrúa og Eyjólfi skólameistara.
Það er mikill heiður fyrir Nemendafélag FAS að hljóta viðurkenningu sem þessa og sýnir það hversu vel hefur tekist til með þær breytingar sem orðið hafa á starfsemi félagsins á síðustu misserum. Styrkurinn kemur að góðum notum og mun styrkja félagsstarfið enn frekar.
Nemendafélag FAS þakkar kærlega fyrir sig.
www.fas.is





Skrifa athugasemd