Fréttir
Dagatal_FAS_2013
Dagatal_FAS_2013
MYND FAS

13.12.2012 Fréttir

Nemendafélag FAS gefur út dagatal

Núna á liðinni haustönn hefur klúbbastarfið verið á fullu eins og síðasta vetur. Ljósmyndaklúbburinn var aftur starfandi og hafa krakkarnir þar verið einstaklega virkir núna í haust.

Tvisvar sinnum hafa verið haldnar ljósmyndasýningar á veggjum skólans og núna síðast hefur dagatal NemFas fyrir árið 2013 verið í vinnslu.
Krakkarnir í ljósmyndaklúbbnum seldu dagatölin um síðustu helgi á jólamarkaðnum og verða aftur að selja laugardaginn 15. desember. Dagatölin voru prentuð hjá Binna í BB Prentun og voru aðeins prentuð 60 stykki þannig nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér eintak af þessu glæsilega dagatali. Því má bæta við að ef að dagatölin klárast verður að sjálfsögðu hægt að sérpanta eftir áramót.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica