Fréttir
Norðurljósin
Norðurljósin
Mynd:Hali Suðursveit
Mynd 1 af 2
1 2

17.12.2012 Fréttir

Norðurljósin heilla

Fjöldi ferðamanna hafa verið í Skaftafellssýslum í nóvember og desember á þessu ári. Er það mikil aukning frá fyrri árum.

Á gistiheimilinu á Hala hefur verið mikið að gera undanfarið og framundan eru annasamir mánuðir því margar bókanir hafa borist og  þegar er fullbókað suma daga í janúar, febrúar og mars. Einnig er mikið bókað um jólin og hópar Japana sem gista á Hótel Skaftafelli koma við í hádegismat á Hala á milli jóla og nýárs.

Það eru norðurljósin sem heilla og  flestir eru að leita eftir. Mikilvægt er  að nú eru helstu ferðamannastaðir í sýslunni opnir yfir veturinn svo sem þjónustumiðstöðin í Skaftafelli, við Jökulsárlón og einnig fjöldi gistinga og þá með mismunandi afþreyingu svo sem Þórbergssetur á Hala, húsdýragarðurinn í Hólmi og ferðaþjónustan í Hoffelli svo eitthvað sé nefnt.  Ísklifur og íshellaskoðun eru vinsælt sport, en þeir hjá Öræfaferðum hafa haft nóg að gera í allan vetur og anna vart eftirspurn suma daga. Ljósmyndarar eru áberandi í þeim hópum ferðamanna sem dvelja á Hala og eru þeir gjarnan í þrjá til fjóra daga að bíða færis að ná góðum myndum af norðurljósum og þá helst við Jökulsárlón.  Einnig eru í gangi svokölluð,,work shop“  þar sem  hópur áhugaljósmyndara dvelur  á sama stað. Með þeim eru  færir ljósmyndarar sem leiðbeinendur og beina þeir fólkinu á rétta staði og veita tilsögn í nýjustu ljósmyndatækni. Alls munu koma a.m.k. tíu slíkir hópar og dvelja á Hala í fjóra daga í senn við iðju sína  í vetur auk fleiri erlendra ljósmyndahópa sem dvelja  í styttri tíma.  Ljósmyndir frá þessum hópum berast síðan með ógnarhraða um netheima og eru talandi auglýsingar fyrir svæðið hér og ýta undir að æ fleiri komi á næstu árum.

Ferðaskrifstofan Extreme Iceland hefur verið með fastar áætlunarferðir í vetur á mánudögum og föstudögum, þar sem þeir aka austur, skoða markverða staði á leiðinni, gista á Hala og fara síðan á Jökulsárlón og Svínafellsjökul dag eftir. Mjög vel hefur selst í þessar ferðir, allt að tuttugu manns í ferð. Eftirtektarvert er hvernig nýir markhópar koma nú til Íslands og eru  Asíubúar og Bandaríkjamenn þar í miklum meirihluta.

Það er  ánægjuleg þróun fyrir okkur Skaftfellinga að ferðaþjónustan er að verða að heilsársatvinnugrein, sérstaklega ef okkur tekst að fylgja því eftir með betri þjónustu sem byggir á eigin verðmætum, þekkingu og leiðsögn heimamanna og mat úr héraði. Þannig eflir ferðaþjónustan um leið matvælaframleiðslu í héraði og veltu í verslunum og þjónustu á svæðinu. Það er því mikilvægt að vera vel vakandi yfir að halda hér uppi góðu þjónustustigi fyrir ferðamenn allt árið.  Þægilegt viðmót og góð upplýsingagjöf til ferðamanna er alltaf mikilvæg, en sérstaklega yfir vetrartímann þegar allra veðra er von. En náttúran heillar umfram allt annað, menningin vekur forvitni og spurningar hjá ferðafólkinu og  því er fræðandi leiðsögn um umhverfi náttúru og mannlíf  afar mikilvæg til að mæta þörfum ferðamannanna.

Ferðaþjónustan á Hala auglýsir nú eftir starfsfólki til starfa í vetur til að geta annað því sem framundan er og vonast til að geta ráðið heimamenn til starfa. Um er að ræða fjölbreytt starf við móttöku og þjónustu við ferðamenn alls staðar að úr heiminum.  

-ÞA


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica