Starfsemi þjóðgarðsvarða yfir vetrartímann
Margir erlendir ferðamenn koma í þjóðgarðinn í Skaftafelli á þessum árstíma og að sögn Regínu Hreinsdóttur þjóðgarðsvarðar hefur orðið aukning á fjölda gesta alla mánuði ársins til þessa.
Regína varar fólk við að fara á Skálafellsjökul án leiðsagnar heldur hafa samband við Bjarna Skarphéðinn sem sér um ferðir á jökulinn. Einnig ættu þeir sem ætla að halda til heiða á þessum árstíma að hafa samband við Landsbjörgu sem er með neyðarþjónustu og leigja neyðarsenda, eins er fólk varað við að fara þar sem engar leiðarmerkingar eru.
Öruggast er að fara í fylgd leiðsögumanns og bendir Regína á Óskar Arason á Höfn sem sinnt hefur slíkum ferðum á Skálafellsjökul í sínum frítíma einnig er Einar Rúnar Sigurðsson með leiðsöguferðir á Vatnajökul.
Gestastofan í Skaftafelli er opin alla daga frá kl. 11-15 í desember nema á jóladag, nýjársdag og 2.janúar. Núna er gott göngufæri meðfram heiðinni að Skálafellsjökli og enginn snjór fyrr en langt uppá heiði en þar er hálka og eins leiðin að Svartafossi og því nauðsynlegt að vera á góðum mannbroddum á þessum leiðum. Þá má benda á að gott göngufæri er inn í Bæjarstaðaskóg og skoða alveg ekta jólaland og má reikna með að slík ferð taki um fimm tíma.





Skrifa athugasemd