Jólagestur - Yrma L Rosas
Yrma kom til landsins árið 2006 frá Perú og þá hafði hún kynnst manninum sínum honum Jóhanni Pétri Kristjánssyni og ákvað að fylgja honum hingað til Íslands. Í Perú eru jólin langstærsta trúarhátíð ársins og það er mikil ljósadýrð sem þeim fylgir. Jólin í uppvexti Yrmu má skipta í tvo kafla. Þegar hún bjó í Amazon- skóginum var mikil fátækt og móðir hennar þurfti að hafa mikla útsjónarsemi til að fæða börnin og klæða. Þau bjuggu fyrstu árin í Kópavogi en fluttu til Hafnar haustið 2010 vegna erfiðs atvinnuástands á höfuðborgarsvæðinu. Jóhann fór að kenna við Framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu en Yrma hóf störf á leikskólanum Lönguhólum og eiga þau tvö börn þau Svölu Mjöll og Svan Snæ.
Yrma er næst yngst níu systkina og ég fæddist og ólst upp fyrstu níu árin í Amazon – skóginum. Níu ára missti hún móður sína og í framhaldi af því fluttist hún með föður sínum til höfuðborgarinnar Lima. Í Perú eru flestir kristnir og tilheyra Kaþólsku kirkjunni en trúarbrögðin eru margvísleg enda kemur fólk úr ýmsum áttum. Fjölskylda Yrmu fylgir Evangelísku kirkjunni líkt og mjög margir í Perú. Meirihluti þjóðarinnar talar spænsku en í Perú má finna mörg tungumál sem eru tungumál ættbálka Indíána.
Í Perú eru jólin langstærsta trúarhátíð ársins og það er mikil ljósadýrð sem þeim fylgir. Jólin í uppvexti Yrmu má skipta í tvo kafla. Þegar hún bjó í Amazon- skóginum var mikil fátækt og móðir hennar þurfti að hafa mikla útsjónarsemi til að fæða börnin og klæða. Elstu systur Yrmu fæddust heima og amma hennar tók á móti þeim svo aðstæður voru erfiðar. Borgin sem Yrma er frá úr Amazon-skóginum heitir Pucallpa og þar endar vegurinn. Ef ferðast á til annarrra borga þá þarf að ferðast með bátum í Amazon-ánni í 3 daga upp í heila viku. Þar er uppistaða fæðu fólks fiskur, bananar og krókódílakjöt og stundum eru haldnar sérstakar veislur þar sem naggrísir,apakjöt og skjaldbökukjöt eru grillaðir á teini og þykir hátíðarmatur. Jólahaldið var því frábrugðið því sem við þekkjum, kjúklingur í matinn og lítið tré skreytti og jólagjöfum kynntist Yrma ekki fyrr en tólf ára gömul. Eftir að systkinin fluttust til höfuðborgarinnar fór jólahaldið að færast í þá átt sem það er í dag.
Í höfuðborginn Lima eru jólin líkt og þekkist á Íslandi og mikil ljósadýrð sem því fylgir. Yrma segir að mikill uppgangur sé í efnahagslífinu um þessar mundir nokkurs konar 2007 svo fólk býr vel og skreytir húsin sín hátt og lágt. Undirbúningurinn hér á landi minnir margt á í Perú en aðventukrans og siðir sem fylgja aðventunni eru ekki mikið áberandi en líkt og í Þýskalandi er Nikulásardagurinn dagur barnanna. Að kvöldi aðfangadags er farið til kirkju en hámark hátíðarhaldanna er um miðnætti á aðfangadagskvöld, þá er borðaður hátíðarkvöldverður sem er fylltur kalkúnn með meðlæti og brauð með ávöxtum. Meðan á málsverðinum stendur er ákveðin heilagleiki en eftir það tekur mikil gleði við. Pakkarnir eru opnaðir, það er dansað og fólk skemmtir sér fram á morgun. Það er mikil gleði þegar fólk kemur saman því fannst Yrmu skrýtið að í boðum á Íslandi var ekkert dansað, bara borðað, spjallað og farið heim. Jafnframt þótti henni Íslendingar vera frekar dökkklæddir , „Ég hélt að ég væri trúðurinn í boðinu í mínum litríku fötum“ segir Yrma og hlær því í Perú eru bjartir litir áberandi.
Á gamlárskvöld fer fólk gjarnan út að borða og skemmta sér því hátíðarhöldin einkennast mikið af samverustundum með fjölskyldunni. Þann 6.janúar koma vitringarnir þrír og færa börnunum gjafir og slíta þá formlega jólahaldinu.
Á Íslandi hafa Yrma og Jóhann haldið jólin í faðmi fjölskyldunnar á höfuðborgarsvæðinu. Móðir Jóhanns hefur því séð um að töfra fram íslensk jól með öllu tilheyrandi. Yrmu finnst jólin á Íslandi mjög hátíðleg og skemmtileg. Auðvitað saknar hún fjölskyldu sinnar en gleðin við að fylgjast með börnunum fá í skóinn, taka upp pakka og njóta jólanna bætir það upp.
Magnhildur Gísladóttir
BB




Skrifa athugasemd