Smyrlabjörg er bær mánaðarins í janúar
Smyrlabjörg er vel búið og vinalegt fjölskyldurekið sveitahótel staðsett við rætur Vatnajökuls. Gisting er í 52 björtum tveggja - og þriggja manna herbergjum með baði og fallegu fjalla – eða sjávarútsýni.
Samkvæmt viðskiptavinum og starfsfólki Ferðaþjónustu bænda eru gæði og gestrisni í fyrirrúmi hjá gestgjöfunum þeim Laufeyju Helgadóttur og Sigurbirni Karlssyni og fjölskyldu. Persónuleg þjónustan og metnaðurinn í matargerðinni ásamt einstakri staðsetningu í nálægð við Vatnajökul gera dvöl að Smyrlabjörgum sérstaklega eftirminnilega að mati fyrrgreindra.
Laufey segir frá því hvernig reksturinn byrjaði: „Við byrjuðum okkar ferðaþjónustu í gamla burstabænum sem var steyptur hér árið 1937 af ömmu og afa Bjössa. Við opnuðum 4. júlí 1990 þá með alls sex herbergi. Það eina sem við Bjössi áttum var hvort annað og fjögur börn á aldrinum 0-8 ára. Það yngsta þá var fætt þarna um vorið og svaf uppi á ískápnum alla morgna það sumar - og fékk aldrei í eyrun!“ Í september 2011 rifum við svo niður burstabæinn og byggðum upp 740 fm hús sem er í bustabæjarstíl. Við opnuðum það síðastliðið vor en þessi nýja bygging er algjör bylting fyrir okkur og ferðamanninn.“
Á Smyrlabjörgum er lögð mikil áhersla á matvæli úr heimabyggð og á sumrin er boðið upp á kvöldverðarhlaðborð með fjölda heimagerðra rétta úr úrvals hráefni frá Austur-Skaftafellssýslu, meðal annars ferskum fiski, lambakjöti og hreindýrakjöti. „Við höfum alltaf reynt að vera persónuleg og sýnileg hér og borðum alltaf hér í salnum ásamt okkar gestum. Við reynum líka alltaf að hafa jákvæðnina að leiðarljósi gagnvart bæði starfsfólki og gestum“, segir Laufey.
Góð ráðstefnu- og fundaraðstaða er á Smyrlabjörgum en veislusalurinn tekur 150-200 manns í sæti og er tilvalinn fyrir árshátíðir, afmæli og aðra viðburði. Gestgjafarnir hafa sérstaklega gaman af viðburðahaldi. Laufey nefnir nokkur dæmi: „Síðastliðin ellefu haust höfum við haldið Bændahátíð. Þá koma saman bændur og búalið og við fögnum uppskeru haustsins með mat, drykk og dansleik, alveg ógleymanlega gaman. Jólahlaðborðin eru svo fastur liður hjá okkur þegar líður að aðventu.“
Hótelið er einkar vel staðsett fyrir þá sem vilja skoða sig um á Suðausturlandi. Þá má nefna bátsferðir á Jökulsárlóni og jeppa- og snjósleðaferðir á Vatnajökli. Fjöldi gönguleiða er í nágrenninu og svæðið er tilvalið til fuglaskoðunar. Miklar líkur eru á því að sjá hreindýr í nágrenninu og á veturna gleðja norðurljósin margan ferðamanninn.




Skrifa athugasemd