Fréttir
Stjorn-Natturustofu-,Hugrun-Harpa -Eyglo-og-Rognvaldur
Stjorn-Natturustofu-,Hugrun-Harpa -Eyglo-og-Rognvaldur

07.01.2013 Fréttir

Náttúrústofa Suðausturlands tekur til starfa á Hornafirði

Stjórn Náttúrustofu Suðausturlands kom saman til fyrsta fundar á Höfn þann 4. janúar.  Stofnun stofunnar hefur lengi verið í undirbúningi en lokahnykkurinn var samþykkt fjárlaga 2013 þar sem gert er ráð fyrir 17 m.kr. framlagi frá ríkinu til stofnunar og rekstur hennar.  Að auki leggja sveitarfélög sem að henni standa 4,5 m.kr. til rekstursins.  Fyrstu tvö starfsár stofunnar mun Sveitarfélagið Hornafjörður eitt bera ábyrgð á rekstrinum en þegar nýtt þekkingarsetur rís á Kirkjubæjarklaustri mun Skaftárhreppur leggja helming á móti samhliða því að starfið verður jafnframt byggt upp þar. 

 

Fyrsta verkefni stjórnar verður að ráða forstöðumann sem mun hafa aðsetur á Höfn. Alls bárust  átta umsóknir í starfið.  Næstu skref verður að móta stofunni nánari stefnu en gert var við undirbúning að stofnun hennar.  Í þeirri vinnu var lögð áhersla á mikla sérstöðu í náttúrufari á svæðinu til dæmis með stærsta jökul utan heimskautanna, virkt eldstöðvabelti, mikil áhrif náttúruafla á land og samfélag og áhrif loftslagsbreytinga.

 

Stjórn stofunnar skipa Rögnvaldur Ólafsson, formaður, Eygló Kristjánsdóttir og Hugrún Harpa Reynisdóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica