Fréttir
Sendiherra ESB á Íslandi
Sendiherra ESB á Íslandi
Timo Summa sendiherra ESB á Íslandi heimsækir Nýheim (MYND:FAS)

17.01.2013 Fréttir

Sendiherra ESB á Íslandi heimsækir Nýheima

Í gær kom Timo Summa sem er sendiherra ESB á Íslandi í heimsókn til Hornafjarðar ásamt fylgdarliði.

Sendiherrann er bæði að kynna sér Hornafjörð og starfsemina hér og eins að kynna stöðuna innan Evrópsambandsins og ganginn í aðildarviðræðunum.

Meðal þeirra staða sem sendiherrann og fylgdarlið heimsóttu  var Nýheimar. Byrjað var á því að ganga um húsið og skoða aðstöðuna.  Starfsemin var kynnt og sú hugmyndafræði sem hér er starfað eftir. Einnig var framtíðarsýn fyrir húsið til ársins 2020 kynnt.

Gestirnir voru mjög hrifnir af Nýheimum og hversu fjölbreytt starf er hér að finna. Fannst þeim að mikil gróska sé í ekki stærra sveitarfélagi og íbúarnir séu vel meðvitaðir um hversu mikilvæg samvinna sé til að ná árangri.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica