Visitvatnajokull.is í úrslitum íslensku vefverðlaunanna í þremur flokkum
Þær frábæru fréttir bárust í gær að heimasíða Ríkis Vatnajökuls ehf. komst í úrslit í þremur flokkum til Íslensku vefverðlaunanna 2013. Vefurinn visitvatnajokull.is var opnaður í júní í fyrra. Tilkynnt var um úrslit í gær og þar eru tilgreindir fimm bestu vefirnir í hverjum flokki að mati dómnefndar skipuðu fagfólki í vefmálum.
Það er mikill heiður að komast í úrslit til Íslensku vefverðlaunanna sem eru veitt árlega af Samtökum vefiðnaðarins. Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkar vef og vekur athygli á svæðinu og þeirri miklu vinnu sem hefur verið lögð í að byggja upp vefmiðla Ríkis Vatnajökuls. Vefurinn var unninn í góðu samstarfi við Kapal markaðsráðgjöf og Skapalón.
Visitvatnajokull.is er tilnefndur í flokkum fyrir besta sölu- og kynningarvefinn (fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn), besta þjónustu- og upplýsingavefinn og besta útlit og viðmót. Verðlaun í hverjum flokki verða afhent í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 8. febrúar kl. 17. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands mun afhenda verðlaunin við hátíðlega athöfn.
Eftirfarandi vefir eru í úrslitum:
Besti sölu og kynningarvefurinn (fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn)
· wow.is
Besti sölu og kynningarvefurinn (fyrirtæki með fleiri 50 starfsmenn)
Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn
· dohop.is
Besti afþreyingar- og/eða fréttavefurinn
· visir.is
· ruv.is
Besti blog/efnistök/myndefni
Besti smá- eða handtækjavefurinn
· dohop.is
· l.is
· live.is
· m.ruv.is
· rautt.is
Aðgengilegasti vefurinn
· rsk.is
Besta markaðsherferðin á netinu
Frumlegasti vefurinn
Besta útlit og viðmót
· wow.is
Félagsmenn SVEF velja einnig athyglisverðasta vefinn og dómnefnd velur Besta vef Íslands 2012.
BB





Skrifa athugasemd